Í mörgum tilvikum stendur fólk í þeirri meiningu að mataræðið
þeirra sé viðunandi. Hafa oftast ekki tekið neitt saman um neysluvenjur sínar
yfir tímabil. Ágætt er að fara inná www.matarvefurinn.is
og taka saman orkuþörf sína á degi hverjum. Minnum á tengil hér hægra meginn á
síðunni.
Morgunmaturinn er mjög mikilvægur þáttur. Morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins og
samkvæmt könnunum eru þau sem ekki borða morgunmat feitari en hin sem gefa sér
tíma til þess. Einnig fá þeir minna en ráðlagðann dagskammt af flestum
nauðsynlegum næringarefnum úr fæðunni.
Mikilvægt er að leggjast ekki í svelti heldur reyna að borða
fjölbreytta fæðu sem inniheldur sem mest að næringarefnum. Forðast ber
gosdrykki sem mest vegna þess að í hverjum ½ lítra er um 50 g af sykri. Best er að
drekka vatn og er vatnsneysla er í raun mjög mikilvæg. Reynum að minnka notkun
sætra drykkja og drekka vatn í staðin. Þó svo sykur sé ekki vandamál, sé hans
neytt í hófi þá verður hann vandamál þegar hann kemur niður á hollu mataræði.
Vil einnig benda ykkur á að kíkja á inn á síðu lýðheilsustöðvar
http://www.lydheilsustod.is